Færsluflokkur: Bloggar

Ert þú Fiskur!

Heyrirði stelpur - og foli..

FisksalkaÉg var að kynnast þessari hugmyndafræði sem gengur út á það að hafa gaman í vinnunni. Guðný talaði líka um þetta í einum tímanum og ef þið hafði áhuga þá er hérna tengill á síðu sem fjallar aðeins um þetta. Svo er líka hægt að fá bókina lánaða á bókasöfnum, sjá hér. Hin fjögur logandi hressu þemu í þessu er:

        • Choose your attitude: þú getur kannski ekki valið þá vinnu sem þú þarft að vinna (t.d. leiðinlegt verkefni í skólanum) en þú getur svo sannarlega valið það viðhorf sem þú hefur til þess.
        • Play: við erum öll börn innst inni... sýnum það.
        • Be present: snýst um að vera á staðnum, líka í huganum. Ekki vera að hugsa um hvort það sé kveikt á eldavélinni heima, hvað gaurinn á bensínstöðinni var fáránlega hot eða eitthvað annað.
        • Make their day: segir sig sjálf, verum góð fyrir hvert annað og reynum að gera a.m.k. einum samstarfsfélaga/skólafélaga daginn eftirminnilegan á einhvern hátt.
Koma svo.. eru ekki allir með mér í þessu? :)

 


félagsráðgjöf fyrir geðsjúka afbrotamenn

logo

    Opinn fyrirlestur

 


Fimmtudagur 19. október, Lögberg stofa 102

kl: 12:15-13:15

 

Lee Quinney: ,,Forensic mental health social work: A UK perspective’’

 

Erindið fjallar um félagsráðgjöf fyrir geðsjúka afbrotamenn, innan og utan stofnana á Bretlandi, en Quinney stundar þar doktorsnám í félagsrágjöf.


Afmælið mitt/námskeiðslokatjútt

Hæ krakkar
Ykkur er boðið í afmælið mitt/námskeiðslokatjútt á föstudaginn
næsta (20. október).
Mæting um kl. 21
Tim's%20Birthday%20Cake á Stýrimannastíg 11, blátt hús á horni Stýró og Bárugötu í vesturbænum.
Þeir sem vilja sötra e-ð koma með sitt eigið en boðið verður upp á léttar veitingar
.

Ætla ekki örugglega allir að mæta??

Kveðja
Guðný


Teiti?

Erum við til í gítarteiti annað kvöld, föstudagskvöld? Októberfest svo á eftir...

Um að gera að sjæna sig til "andlega" fyrir húllumhæið á laugardaginn ;)

Hvað segiði svo? Þögn er sama og samþykki.is 


Vegna ráðstefnu- og útskriftarferðar

Sælir félagsráðgjafanemar á 4 ári

 

Endilega komið með hugmyndir af stöðum sem hægt er að sækja styrki til og sendið til þeirra. Getið sett í kommentinn hvert þið hafið sent svo að það séu ekki margir að senda á sömu staðina. Þið fáið sent bréf sem þið getið notað til að senda áfram í tölvupósti og megið að sjálfsögðu breyta af vild.

 

Hugmyndir sem komnar eru og í vinnslu er KB-banki, Vísa og Stúdentasjóður.

 

Þetta er reikningsnúmerið á ferðasjóðnum okkar.

Banki 0311 höfuðbók 26 reikningsnúmer 4211 og kennitalan er 421100-2920

 

Svo langar okkur að hvetja Guðrúnu og Fríðu að safna upplýsingum í uppskriftarbók og Signý, Andreu, Elvu til að setja allt á fullt hjá sér við söfnun.

 

Kveðja skipuleggjendur


Göngum gegn sjáfsvígum!

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er á morgun, þriðjudaginn 10. október og þá verður gengin hin árlega geðganga!

Yfirskrift dagsins í ár er Vaxandi vitund – aukin von: Saman eflum við geðheilsu og drögum úr sjálfsvígum.

Gangan í ár ber yfirskriftina Göngum gegn sjálfsvígum og ætlum við að hittast í Hallgrímskirkju kl. 20:00 annað kvöld þar sem Páll Óskar og Monika og Módettukórinn ætla að heiðra okkur með tónlist sinni og séra Birgir Ásgeirsson verður með stutta hugleiðingu.

Að þessari athöfn lokinni verður gengið niður að tjörn þar sem við tekur kertafleyting til minningar um alla þá sem við höfum misst vegna sjálfsvíga.

Kertin verða afhent þátttakendum á staðnum án endurgjalds.

Sýnum samstöðu og göngum gegn sjálfsvígum, því þetta er eitthvað sem snertir okkur öll!


Hrafnista!

Skráning byrjuð í vinsælustu vísó ... um að gera að tryggja sér sæti :)

HÉRNA!!! 

Sjáumst vonandi annað kvöld í ammlisteiti.is :)

Fannsa pannsa pönnukaka 


Samfélagsverkefnin

 

Tillaga að bol?
jæja, hvernig líst ykkur svo á verkefnin sem við erum að þróa í samfélagsvinnunni?

 

Gætu þið hugsað ykkur að vinna á einhverjum staðnum? Einhverjar hugmyndir til hinna hópanna sem ykkur dettur í hug? Einhverjar heimildir sem þið hafið fundið sem gætu nýst öðrum?

 

 


Þriðjudagar með Morrie í útvarpinu!

Þriðjudagar með Morrie eftir Mitch Albom og Jeffrey Hatcher

Þýðandi: Sigurður Skúlason

Fimmtudagur 5.10.2006 á Rás 1 (93,5)

Kl. 22.15 Útvarpsleikhúsið: Þriðjudagar með Morrie

Leikritið sem nú verður flutt byggir á bók eftir Bandaríkjamanninn Mitch Albon, sem var kunnur íþróttafréttaritari og vakti ekki síst athygli fyrir frumleg efnistök í pistlum sínum. Í þeim fjallaði hann oftar en ekki um málefni sem virtust íþróttum með öllu óviðkomandi. Ungur drengur, sonur eiturlyfjafíkils, en ákafur körfuboltamaður, gat orðið Albon að umfjöllunarefni, rétt eins og sleðahundakeppni norður í Alaska. Oft mátti lesa óvægna gagnrýni á bandaríska þjóðarsál í pistlum Mitch Albons í dagblaðinu Free Press, en heimsathygli vakti hann með bókinni, “Þriðjudagar með Morrie”. Í henni lýsir hann vikulegum heimsóknum sínum til íþróttafréttaritarans Morrie Schwartz sem haldainn var Lou Gehrig-sjúkdómnum og lá fyrir dauðanum. Jeffrey Hatcher hreifst af þessari óvenjulegu samtalsbók og skrifaði eftir henni leikgerð, en margir kannast einnig við kvikmynd sem gerð var um sama efni. Í henni fór Jack Lemmon með hlutverk Morrie Schwartz og fyrir kaldhæðni örlaganna reyndist það vera síðasta hlutverk hins magnaða leikara.

Morrie Schwartz er leikinn af Pétri Einarssyni og Ellert A Ingimundarson fer með hlutverk Mitch Albom. Aðrir leikarar: Jóhann Vigdís Arnardóttir og Hallmar Sigurðsson. Píanóleikur: Kjartan Valdimarsson. Kristján Hreinsson þýddi söngtexta og kynnir er Stefanía Valgeirsdóttir. Hljóðvinnsla: Georg Magnússon. Leikstjóri: Sigurður Skúlason.

Verkið tekur 90 mínútur í flutningi.

Frumflutningur.

Leikstjóri: Sigurður Skúlason
Aðalhlutverk: Pétur Einarsson og Ellert A. Ingimundarson



Heilabilun - Fjölskyldusjúkdómur 21 aldar?

Heilabilun - Fjölskyldusjúkdómur 21 aldar?
Minnt er á fróðlega ráðstefnu á morgun laugardaginn 23. september kl. 13.00 - 16.00.

Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd (RBF) stendur fyrir opnu málþingi um heilabilun (Alzheimers og skylda sjúkdóma) á Hótel Loftleiðum laugardaginn 23.september kl. 13.00 -16.00.

Dagskrá

13:00-13:10 Setning: Sigrún Júlíusdóttir prófessor og stjórnarformaður RBF

13:10-13:20 Ávarp heilbrigðisráðherra

13:20-13:50 Dr. Christine Swane: Development of dementia care in Denmark: A family oriented perspective

13:50-14:10 Hanna Lára Steinsson, forstöðumaður RBF: Úrræði í nútíð og framtíð fyrir sjúklinga og aðstandendur

14:10-14:20 Sýnt brot úr heimildarmyndinni Hugarhvarf: Lífið heldur áfram með heilabilun

Kaffi

15:00-15:20 Helga Vala Helgadóttir, fjölmiðlakona og dóttir: ,,Ætlarðu með hana á kaffihús?''

15:20-15:40 María Th. Jónsdóttir formaður FAAS og maki: Staða aðstandenda

Ráðstefnan er öllum opin
Aðgangseyrir kr. 1.500

Skipuleggjandi málþingsins er:
RBF (Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd - www.rbf.is)í samvinnu við:
RHLÖ (Rannsóknarstofa HÍ og LSH í öldrunarfræðum)
FAAS (Félag aðstandenda Alzheimerssjúklinga, www.alzheimer.is)
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Félagsmálaráðuneytið
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar

Í kaffihléi verða eftirfarandi kynningar:

1. Nýútkomin bók eftir Hönnu Láru Steinsson: ,,Í skugga Alzheimers: Ástvinir segja frá''.
2. Nýr DVD. Fræðslumynd með leikurunum Kristbjörgu Kjeld og Gísla Alfreðssyni: ,,Hugarhvarf: Lífið heldur áfram með heilabilun''.
3. FAAS. Félag aðstandenda Alzheimerssjúklinga

« Fyrri síða | Næsta síða »

Við erum:

Útskrifarárgangur félagsráðgjafar
Útskrifarárgangur félagsráðgjafar
Hérna bloggar útskriftarárgangur félagsráðgjafa um sín hugðarefni þá stundina.

Forvitnishornið.is

Ætlarðu að mæta í saumó 24.júní???
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Fólk

Börnin okkar

Stökin í menginu

Þetta erum við!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband