Færsluflokkur: Bloggar

Tilboð í leikhús!

Afgangar

Hitti leikstjóra á vappi í gærkvöldi sem vildi endilega sýna okkur félagsráðgjafarnemum leikrit sem heitir Afgangar og á víst voðalega vel við okkar nám. Við fáum afsátt af miðanum. Ég vona að þið sjáið ykkur fært um að kíkja á þetta, 2000 kall er nú ekki neitt fyrir leikhús! Sjálf er ég að fara á þetta leikrit í kvöld og læt ykkur vita hvernig það er... :) Góða helgi! 

P.s. klikkið á myndina til að lesa letrið - þarf að klikka 2-3 þá súmmast hún upp ;) 


Afgangar

Gisting í Parma

Hæ öllsömul...

Var aðeins að skoða flug og gistingu í Parma. Mér sýnist engin lággjaldaflugfélög fljúga beint til Parma (er reyndar farin að efast um að þar sé flugvöllur) þannig að málið er að fljúga til Mílanó eða Bologna og taka svo lest þaðan. Síðan var ég að skoða ódýra gistingu, sem er reyndar af skornum skammti, en datt niður á Hostel í kjarna bæjarins þar sem gistingin kostar 10 evrur á mann (um 900kr.) og gerist það nú ekki betra. Hins vegar eru bara 25 rúm í húsinu, hvað erum við mörg sem ætlum? og svo er ekki víst að hostelið opni fyrr en í apríl... en ég sendi þeim póst og læt ykkur vita:) Bara svona láta vita.. Kiss piss

Hildigunnur


Málstofa um barnavernd



„Hlutverk dómstóla skv. ákvæðum barnaverndarlaga nr. 80/2002

Fyrirlesari: Hrefna Friðriksdóttir, lögfræðingur á Barnaverndarstofu




Tími: Mánudaginn 25. september kl. 12.45 - 13.45

Staður: Barnaverndarstofa

Fyrsta málstofa haustsins um barnavernd sem félagsmálaráðuneytið, félagsráðgjöf HÍ, Barnavernd Reykjavíkur og Barnaverndarstofa standa fyrir verður haldin mánudaginn 25. september kl. 12.45 - athugið breyttan fundartíma.


Á málstofunni mun Hrefna Friðriksdóttir fjalla um hlutverk dómstóla skv. ákvæðum barnaverndarlaganna. Skoðaðir verða úrskurðir og dómar sem gengið hafa frá setningu laganna. Mikilvægt er að fá yfirlit yfir fjölda og tegundir þessara mála, meta lítillega hvort markmið lagabreytinganna hafi náðst og skoða hvaða lærdóm má draga af málsmeðferð og niðurstöðum dómstóla.

Málþing!!

Raddir fatlaðra barna – Málþing á vegum Rannsóknaseturs í fötlunarfræðum verður haldið í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ, 3. nóvember kl. 14-17 í sal 132. Málþingið er opið öllum og án endurgjalds.

Aðalfyrirlesari er  Dr. Kirstin Stalker dósent við University of Strathclyde í Skotlandisem hefur langa reynslu af rannsóknum með fötluðum börnum. Dr. Kirsten Stalker er hér á landi í tengslum við rannsóknina Börn, ungmenni og fötlun sem er verkefni á vegum Rannsóknarseturs í fötlunarfræðum. Rannsóknin beinist að lífi og reynslu fatlaðra barna og ungmenna og snýr að öflun þekkingar á sjónarhorni og skilningi þeirra á fötlun og skerðingu.


Útskriftarferð

Sælir félasráðgjafanemar

Það kom upp hugmynd að fara á ráðstefnu til Ítalíu sem útskrifarferð getið kíkt á slóðina um hana á http://www.newteam.it/socialwork2007/. Endilega segið ykkar skoðun á þessari hugmynd.

Það vantar hugmynd af einhverri flottri setningu á bol sem við gætu selt til að safa pening svo endilega leggið höfuðið í bleyti? Ef ykkur dettur fleiri hugmyndir af fjársöfnun endilega komið henni á framfæri.

Væri gaman ef fleiri settu myndir á síðuna alltaf svo gaman að skoða myndir af fallegum félagráðgjafnemum.Hlæjandi

Kveðja Edda Lára


Upplýsingar á netinu

Hæ sílin mín!

Ég er á næturvakt í vinnunni minni og eins og oft vill verða á slíkum stundum vafraði ég um alnetið góða. Ég fann þar ansi skemmtilegt tenglasafn sem leiddi mig m.a. á síður eins og Missir.isvefsíðu Nýrrar dögunar og upplýsingar um sorg eftir sjálfsvíg eftir Hugó Þórisson sálfr. Kíkiði endilega á þetta!

Nú svo á ögn líflegri nótum - vona ég - þá langar mig að benda ykkur á þennan skemmtilega leik sem ég fann á netinu. Endilega greinið mig og búið til fyrir ykkur sem við hin getum svo tekið þátt í :)  

Ahhhh... sælla minninga! :) 

Ástarknús með kaffirjóma,

Fannsa

P.s. ef þið höfðuð ekki áttað ykkur á því þá eru dökkbláu orðin tenglar á aðrar síður ;) Munið líka að taka þátt í Forvitnishorninu.is (hér til vinstri) Koss Já svo sett ég líka inn nokkrar myndir úr vorferðinni, er til vinstri undir Albúmin mín.

 

Algjörar túttur, umvafnar bútasaumsteppum!
 
 
Þvílíkar fegurðardísir, allar með colgate brosið nema Bogga sem setur upp hössl-lúkkið.
 
 
"Það er partý í gangi, allir að mæta" - tekist á við kreppu í gegnum teketil.
 
 
Folinn Frikki heillar kvenþjóðina - líka Betu sem þó er harðgift.is!
 

 


Frábært krakkar

Það verður meiriháttar að blogga hérna og vinna úr öllum kreppunum þannig he he.

Ný síða!

Frábær hugmynd hjá henni Fanney Dóru Svalur

Dagný (19 ára)


« Fyrri síða

Við erum:

Útskrifarárgangur félagsráðgjafar
Útskrifarárgangur félagsráðgjafar
Hérna bloggar útskriftarárgangur félagsráðgjafa um sín hugðarefni þá stundina.

Forvitnishornið.is

Ætlarðu að mæta í saumó 24.júní???
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Fólk

Börnin okkar

Stökin í menginu

Þetta erum við!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband