Færsluflokkur: Bloggar

Árshátíð?!!!!

Jæja girls! og strákur Tounge

Hvernig væri að fjölmenna á Árshátíðina Okkar þann 10. mars (að ég held)????

Djamma drekka djúsa sjússa og spjalla Wizard

Ég væri amk alveg til í það! og að hitta sem flesta! hvað segið þið??Kissing

 

 


Partý!!!!!

Jæja allir, endilega komum þessu blessaða laugardagskvöldi á hreint :)

Ætlum við að fjölmenna á BARINN? Eða er planið eitthvað annað... ...

endilega komið með svör, persónulega er mér nokk sama hvar við hittumst, bara gaman að heyra ykkur og sjá :) og ekki er nú verra fyrir ykkur að heyra mig og sjá ;)

koma svo... plana, plana

Inga Þ


Ráðstefnan í Parma

Hérna eru upplýsingar um ráðstefnuna okkar.. það styttist allsvakalega í þetta görlís! :)

Ástarkveðjur úr 40 cm snjónum á Ak...

Effdé


Heimsókn í Aflagranda

Kæru samnemendur

Ég vil endilega beina athygli ykkar að eftirfarandi e-maili sem við fengum í vikunni. Þjónustumiðstöðin í Aflagranda ætlar að bjóða okkur í heimsókn og gefa okkur kynningu á starfseminni og þá aðallega á stuðningsþjónustunni, sem er mjög spennandi. Það er ekki á hverjum degi sem okkur er boðið í heimsókn og um að gera að nýta tækifærið að kynna sér sem flest nú á þessum seinustu og bestu tímumWink Ég hvet ykkur öll til að mæta og get ég lofað því að það verður tekið extra vel á móti okkurGrin Vonandi sé ég sem flesta!

Kveðja Guðný

 

Kæru nemar

Okkur langar til að bjóða ykkur í hádegisverð í Aflagranda 40 og kynna í
leiðinni fyrir ykkur stuðningsþjónustuna. Stuðningsþjónustan er þjónusta
sem veitt er einstaklingum á öllum aldri, liðveisla, tilsjón og persónuleg
ráðgjöf. Við erum alltaf að leita að fólki til að taka að sér einstaklinga
í stuðning og finnst okkur tilvalið að bjóða ykkur að koma og kynnast
þessu starfi þar sem við teljum vinnu að þessu tagi geta nýst ykkur vel í
náminu ykkar.

Föstudaginn 19. janúar n.k. kl. 13:00 eruð þið velkomin til okkar í
Aflagranda 40. Endilega látið mig vita hvort þið getið komið eða ef
einhverjar spurningar vakna getið þið haft samband við mig.


Halla Björk Marteinsdóttir
Verkefnastjóri í félagslegri heima-og stuðningsþjónustu
Félagsmiðstöðin Aflagranda 40
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar
Sími: 411-2700

Netfang: halla.bjork.marteinsdottir@reykjavik.is 

 


rannsóknarverkefni

Halló allir saman.

Nú væri gaman að heyra hvernig fólki gengur í starfsnáminu.

Ég er sjálf mikið að velta fyrir mér rannsóknarverkefninu í augnablikinu... væri gaman að heyra hvað hinir eru að spá.

Kveðja frá Egilsstöðum,

Hlín


Gleðileg jól og MSN

kæru bekkjasystkini
Endilega addið mér inn á contact listann ykkar er með gea@hi.is
kv Guðrún

Starfsþjálfun...

Sælt veri fólkið! Ég er svo assskoti forvitin að vita hvert allir eru að fara í starfsþjálfun. Það væri nú dáldið gaman ef þið væruð til í að setja það hérna inn og jafnvel hvort þið farið þangað sem þið sóttust eftir að fara?

Best ég byrji:

ég er að fara í Þjónustumiðstöð Árbæjar- og Grafarholts til hennar Elísabetar sem kenndi okkur samfélagsvinnu. Ég sótti um þennan vinnustað þannig að ég hlýt að vera sátt :-)

kv. Birna 

 


myndir...

Sælar stúlkur!

mig langaði bara að benda á að hægt er að sjá nokkrar myndir frá fimmtudagsfyllerínu okkar á netinu... jebb beibís we´re online!!!  ;)

kv. ástulíus

hummm kannski að láta slóðina fylgja með... hvernig væri það?! hún er hér (frá Elísabet):

http://www.picturetrail.com/bekkjarpartyprof

hehe reyndar ekki sýnt frá því þegar líða tók á kvöldið, en það væru ekki síður áhugaverðar myndir :D


Kynningarfundur um aðgerðaáætlun gegn heimilisofbeldi og kynferðislegu ofbeldi

Í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi kynnir Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra aðgerðaáætlun stjórnvalda vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis sem tekur til áranna 2006 til 2011.

Kynningin fer fram í Hringborðssal Þjóðmenningarhússins miðvikudaginn 6. desember kl. 14.

Ásamt ráðherra taka Sigrún Jónsdóttir, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga í samráðsnefnd um aðgerðir gegn ofbeldi gegn konum, og Thelma Ásdísardóttir, fulltrúi 16 daga átaksins, þátt í kynningarfundinum.

Meginmarkmið aðgerðaáætlunarinnar er að vinna gegn ofbeldi á heimilum og kynferðislegu ofbeldi sem beinist að konum og börnum sem og að bæta aðbúnað þeirra sem orðið hafa fyrir ofbeldi eða eru í áhættuhópi.

Um er að ræða efnismikla aðgerðaáætlun sem felur í sér 37 aðgerðir. Hverri aðgerð er lýst sérstaklega ásamt tilgangi hennar. Einstökum ráðuneytum hefur verið falin ábyrgð á framkvæmd sérhverrar aðgerðar ásamt því að settur er fram tiltekinn tímarammi um framkvæmdina.

Aðgerðaáætlunin var samin á vettvangi samráðsnefndar félagsmálaráðuneytis, dóms- og kirkjumálaráðuneytis, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Við gerð áætlunarinnar voru meðal annars höfð til hliðsjónar drög frjálsra félagasamtaka að aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi sem var send einstökum fagráðherrum í kjölfar 16 daga átaksins 2004.

 Aðgerðaáætlun vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis


Húrra Ingibjörg!

Sko þessa stelpu! Framtíðarofurfélagsráðgjafi þarna á ferð! :)

 

The%20social%20worker%20just%20called

 


mbl.is Tæpur helmingur fórnarlömb kynferðisofbeldis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Við erum:

Útskrifarárgangur félagsráðgjafar
Útskrifarárgangur félagsráðgjafar
Hérna bloggar útskriftarárgangur félagsráðgjafa um sín hugðarefni þá stundina.

Forvitnishornið.is

Ætlarðu að mæta í saumó 24.júní???
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Fólk

Börnin okkar

Stökin í menginu

Þetta erum við!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband