Miðvikudagur, 25. júní 2008
Frönsk súkkulaðikaka !
Jæja dömur,
ég ákvað að henda hérna inn uppskriftinni að frönsku súkkulaðikökunni sem ég kom með til Hlínar í gær.. Enjoy!
200 gr. suðusúkkulaði
200 gr. smjör
4 egg
2 dl. sykur
1 dl. hveiti
Bræðið smjörið og súkkulaðið saman, kælið svo aðeins.
Þeytið saman egg og sykur þar til það verður létt og froðukennt (fimm mínútur ca).
Blandið súkkulaðiblöndunni saman við eggjablönduna. Bætið hveitinu við í lokin.
Klæðið bökunarform með bökunarpappír og látið deigið í. Bakið við 180°C í 30 mín. (kakan á að vera blaut).
Kremið:
200 gr suðusúkkulaði
70 gr. smjör
2 msk. sýróp
Allt brætt saman í potti og látið kólna aðeins og svo sett yfir kökuna..
kv.
ástulíus
Forvitnishornið.is
Tenglar
Bíómyndir
Áhugaverðar bíómyndir sem tengjast okkur á einhvern hátt.
- Danny the dog Mynd sem kemur verulega á óvart! Farið er með mann sem hundur væri, mjög áhugaverð mynd.
- What becomes of the broken hearted? Framhald á Once were warriors
- Once were warriors Mynd um ofbeldissamband, gerðum verkefni úr henni í Ofbeldi og vanræksla í fjsk.
- Rainman Frábær mynd um einhverfan mann.
- Crash Mynd þar sem fordómar spila stórt hlutverk. Algjör snilld!
Færsluflokkar
- Áföll og kreppur
- Bloggar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Myndir
- Reikningur utanlansfara
- Sjónvarp
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Utanlandsfarar
- Vefurinn
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Fólk
Börnin okkar
-
Bogga
Boggustrákur -
Sandra
Nýbökuð móðir -
Sigrún Heiða
Tæknilega ekki í útskriftarhópnum, en klárlega móðir! -
Harpa nýbakaða
Tæknilega ekki í útskriftarhópnum, en klárlega móðir! -
Erla þriggja stráka mamma
3 krúttúsnúðar
Stökin í menginu
Þetta erum við!
-
Dagný Foxy
Miss Foxxxy -
Fanney Dóra
Lætur allt flakka...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Og! Takk fyrir gærkvöldið, yndislegt eins og alltaf!
Ég er svo svöng núna í vinnunni og er að skoða uppskriftir á netinu af pastaréttum og svo skoðaði ég myndirnar okkar frá Parma og mig langar svo aftur til ítalíu!!!! í pasta og hvítvín og pizzu..
Eeeennn farin að vinna í bili
Ásta Jóna (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 11:21
Hæ hæ
Stelpur takk kærlega fyrir gærkvöldið
Ásta takk fyrir uppskriftina, þetta var geggjuð kaka
kveðja Eva
Eva (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 23:07
Hæ aftur. Takk kærlega fyrir kvöldið hjá Hlín. Var voða gaman að sjá ykkur aftur þó mætingin hafi ekki verið voðalega mikil en þær sem mættu voru alveg hrikalega skemmtilegar. Takk fyrir uppskriftina Ásta og nú verð ég sjálf svöng að hugsa um pasta, hvítvín og pizzur ohhhhhhhhhhhh.
Hafið það sem allra best og ég reyni að skrifa einhverja sniðuga pistla hingað inn þegar ég flyt á austurlandið.
Knús Sigrún :)
Sigrún (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 11:05
Hæ leiðinlegt að komast ekki það hefði verið gaman að kíkja á ykkur.
Snilld hjá þér Ásta að setja inn uppskrift, þetta líkar mér:)
En hvað er í gangi hjá þér Sigrún, þú verður að öppdeita liðið sem ekki mætir á hitting;)
kveðja Guðný
Guðný (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 21:06
Hæ Guðný og allar hinar. Já ég er að fara flytja austur í Fjarðabyggð nánar tiltekið á Reyðarfjörð þar sem ég mun starfa sem félagsráðgjafi. Stór partur af jobbinu verður barnavernd eins og ég starfa í dag við í Hafnarfirðinum en ég verð væntanlega bara allt í öllu á svona litlum stað. Ákvað að slá til þegar mér var boðin flutningsstyrkur og niðurgreitt húsnæði þannig ég og mín 3 manna fjölskylda plús köttur flytjum í hús með garði sem við leigjum :) Fer líklega austur í kringum verslunarmannahelgi og bara já vona þetta verði bara ævintýri annars kem ég bara tilbaka hahah.
Þannig að ég og Hlín tökum austurlandið með trompi og tökum ærlega til í félagsmálapakkanum þar, endum svo örugglega bara sem félagsmálastjórar, hún á Héraði og ég á fjörðunum með fáránlega góð laun og einkabílastjóra og já frítt einbýlishús og kokk!:)
Sigrún (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 18:11
Mmmm æðisleg uppskrift, ég ætla að prófa hana ;-)
Það hefði verið gaman að kíkja á ykkur, ég reyni að komast næst :-)
Gaman að heyra fréttir af ykkur ;-)
Allt gott að frétta hérna hjá okkur í Hveró
Kv. Sandra
Sandra (IP-tala skráð) 28.6.2008 kl. 13:32
Sigrún: já haha einmitt þetta stefnir allt í einkabílstjórann;) en innilega til hamingju með starfið það verður spennandi að fá að fylgjast með hvernig gengur.
Annars var ég stödd á Ísafirði um helgina og hitta Guðnýju Steingríms þar í gærnótt. Hún var hress að vanda. Það er nóg að gera í vinnunni hjá henni í Félagsþjónustu Ísafjarðar. Hún biður ábyggilega að heilsa öllum.
kveðja guðný
Guðný (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 18:58
Sælar
Ég er greinilega ekki alveg með á nótunum. Sigrún að flytja austur og guðný Steingríms greinilega komin vestur. Lndsbyggðartútturnar verða alltaf fleiri og fleiri.
Ég er ennþá hérna fyrir norðan í góðu yfirlæti. Er farin að vinna á fjölskyldudeildinni og það er mjög skemmtilegt.
Svo er ég náttúrulega að fara að gifta mig eftir tvær vikur og á fullu í að undirbúa það.
Vonandi kemst ég í næsta hitting Kv Bogga
Bogga (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 09:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.